Erlent

Við­tal á Stöð 2 kveikir upp í fær­eyskum stjórn­málum

Kristján Már Unnarsson skrifar
Heðin Mortensen, borgarstjóri Þórshafnar, í viðtalinu umdeilda á Stöð 2. Fyrir aftan er ráðhús Þórshafnar.
Heðin Mortensen, borgarstjóri Þórshafnar, í viðtalinu umdeilda á Stöð 2. Fyrir aftan er ráðhús Þórshafnar. Egill Aðalsteinsson

Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina.

Það var í viðtali sem birtist á Stöð 2 síðastliðinn þriðjudag sem Heðin Mortensen lýsti þeirri skoðun sinni að hefja ætti viðræður við NATO um að varnarbandalagið greiddi kostnað við gerð 3.000 metra langrar flugbrautar á Glyvursnesi við Þórshöfn. Hann sagði núverandi flugvöll í Vogum of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar.

Fréttin á Stöð 2 hefur vakið mikla athygli færeyskra fjölmiðla og kallað fram fjörugar umræður. Fréttasíðan Portal.fo greindi strax morguninn eftir frá ummælum borgarstjórans. Kringvarpið tók málið einnig upp og leitaði eftir viðbrögðum helstu stjórnmálamanna eyjanna.

Teikning að 3.000 metra langri flugbraut á Glyvursnesi við Þórshöfn sem borgarstjórinn vill fá NATO til að borga.Landsverk

Í viðtali við Kringvarpið tók Heðin Mortensen hugmyndina svo áfram á næsta stig. Hann hygðist ekki sitja við orðin tóm heldur yrði málið lagt formlega fyrir næsta fund bæjarráðs Þórshafnar síðar í þessum mánuði.

Hann sagði að miðað við stöðu heimsmála væri upplagt að NATO greiddi kostnað við flugvöll á Glyvursnesi, sem stærstu flugvélar gætu lent á. Það gæfi færeysku atvinnulífi mikil tækifæri og samfélaginu í heild.

Lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal voru samstíga í viðbrögðum sínum og sögðu þetta ekki koma til greina. Í Kringvarpinu settu þeir jafnframt ofan í við borgarstjórann og sögðu að öryggis- og varnarmál væru ekki á verksviði sveitarfélaga.

Aksel V. Johannesen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkisráðherra, hafna báðir hugmyndinni um að NATO borgi flugvöll í Færeyjum. Hér eru þeir ásamt Ruth Vang fjármálaráðherra en þau eru formenn samstarfsflokkanna sem mynda landsstjórn Færeyja.Kringvarpið

Í umfjöllun á dagur.fo segir að þetta séu ekki loftkastalar og tillagan hafi aldeilis kveikt upp í umræðunni. Sagt er frá því að Bjarni Prior, bæjarstjóri í Vogum, þar sem núverandi flugvöllur er, geri stólpagrín að hugmynd borgarstjóra Þórshafnar í pistli á Facebook.

Þar segist Bjarni ætla að leggja þá tillögu fyrir næsta bæjarstjórnarfund að NASA verði fengið til að byggja geimeldflaugastöð í Vogum. Einkaaðilum eins og Elon Musk og Spacex yrði einnig heimilað að skjóta þaðan gervihnöttum á sporbraut um jörðu. Í staðinn ætti Elon að afhenda hverjum íbúa Voga Teslu rafmagnsbíl að gjöf. Heðin Mortensen, borgarstjóri Þórshafnar, fengi sæti út í geim í fyrstu ferðinni á kostnað bæjarstjóra Voga.

Hér má sjá viðtalið umdeilda:


Tengdar fréttir

Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands

Smíði nýrrar þjóðarhallar Færeyinga skotgengur og er stefnt að því að fyrstu kappleikirnir verði spilaðir í febrúar á næsta ári. Borgarstjóri Þórshafnar býður Íslendingum að nýta færeysku höllina undir landsleiki Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×